AILárus Hjartarson

Að flytja erindreka milli gervigreindarbirgja: textinn fylgir með, tengingarnar ekki

Að flytja erindreka milli gervigreindarbirgja: textinn fylgir með, tengingarnar ekki

Fyrirtæki sem hefur smíðað aðstoðarmann í Copilot Studio eða sérsniðið GPT í ChatGPT hefur yfirleitt lagt í það talsverða vinnu. Einhver skrifaði leiðbeiningarnar, safnaði saman skjölunum, tengdi kerfin og prófaði þar til þetta virkaði. Svo kemur að því að skoða annað mállíkan. Kannski er það verðið, kannski gæðin í ákveðnum verkum, kannski einfaldlega það að birginn breytir forsendunum. Í júní lokuðu bandarísk stjórnvöld fyrir aðgang utan Bandaríkjanna að tveimur nýjustu mállíkönum Anthropic. Í september tilkynnti OpenAI að sérsniðin GPT hættu að virka 11. desember og að eigendur þeirra þyrftu að flytja þau yfir í viðbætur (plugins).

Þeir sem eiga sérsniðið GPT þurfa því að flytja það hvort sem er, og þá liggur beint við að spyrja hvað þurfi til að láta sama erindreka (AI agent) virka í Claude. Stutta svarið er að það fer eftir því úr hverju hann var smíðaður. Erindreki sem er byggður á stöðlum sem stóru birgjarnir styðja allir fylgir að mestu leyti með. Erindreki sem er smíðaður í eldri smíðatólum kerfisins þarf að smíða upp á nýtt, sama hvert hann fer.

Úr hverju erindreki er gerður

Anthropic, OpenAI og Microsoft hafa á síðasta ári færst í átt að sömu byggingareiningunum. Heitin eru stundum ólík, en einingarnar eru þessar:

Leiðbeiningar. Hlutverkið, reglurnar og tónninn sem gilda alltaf. Texti.

Færni (skills). Mappa með skrá sem heitir SKILL.md, ásamt skjölum og skriftum sem verkið þarf. Erindrekinn les aðeins nafn og lýsingu hverrar færni í byrjun og sækir restina þegar verkið kallar á hana. Þetta er opinn staðall (agentskills.io) sem bæði Claude og ChatGPT/Codex byggja á.

Tengingar (MCP). Model Context Protocol er staðlaður samskiptamáti milli mállíkans og annarra kerfa. Sami MCP þjónn virkar með hvaða erindreka sem styður staðalinn, og Claude, OpenAI og Copilot Studio gera það öll.

Þekking. Skjöl og gögn fyrirtækisins, ýmist sem viðbótarskjöl í færni eða sótt í gegnum tengingu, til dæmis í SharePoint.

Minni. Fyrri samtöl og það sem erindrekinn hefur lært um notandann. Það er bundið kerfinu.

Umgjörð og mállíkan. Kerfið sem keyrir þetta allt saman, og mállíkanið sjálft. Þetta er það sem á að vera hægt að skipta út.

Viðbætur eru umbúðirnar. Hjá OpenAI er viðbót pakki sem getur innihaldið færni, öpp (tengingar við önnur kerfi) eða hvort tveggja. Í Claude Code er viðbót pakki af færni, tengingum og öðrum stillingum. Lögunin er sú sama.

Það sem fylgir með

Leiðbeiningar og færni eru texti, og texti sem virkar vel í einu mállíkani virkar yfirleitt ágætlega í öðru. Það þarf samt að fara yfir hann. Algengast er að í honum séu tilvísanir í kerfið sem hann var skrifaður fyrir: „þú ert ChatGPT“, nöfn á tólum sem verða ekki til í nýja kerfinu, eða sérstakt orðalag og uppsetning sem einhver prófaði sig áfram með þar til ákveðið mállíkan gerði það sem hann vildi. Mállíkön bregðast líka misjafnlega við áherslum. Setning sem var skrifuð með hástöfum til að fá eitt mállíkan til að hlýða getur gert annað of stíft.

Það skemmtilega við flutning OpenAI yfir í viðbætur er að hann færir fólk nær Claude, ekki fjær. Þegar sérsniðnu GPT er breytt í viðbót verða leiðbeiningarnar og skjölin að færni í sama staðli og Claude notar. Sá sem flytur GPT yfir í viðbót í desember er því kominn með færni sem á góða möguleika á að virka í Claude með litlum breytingum.

Tengingar sem eru byggðar sem MCP fylgja líka með. Tengingin sjálf er þjónn sem stendur fyrir utan erindrekann, svo það eina sem þarf er að benda nýja kerfinu á hann og veita aðgang.

Þekkingin fylgir með ef frumritin eru til. Ef skjali var hlaðið beint upp í sérsniðið GPT fyrir ári og upprunalega útgáfan er týnd, er ekki alltaf auðvelt að ná því út aftur í sama formi. Þekking sem kemur úr Microsoft 365 er annað mál. Claude getur tengst SharePoint, OneDrive, Outlook og Teams og fer eftir heimildum hvers notanda, en kerfisstjóri þarf að samþykkja tenginguna í Microsoft Entra, og það borgar sig að staðfesta að hún nái í sömu gögn og Copilot gerði. Það sést annars ekki fyrr en einhver spyr um skjal sem erindrekinn finnur ekki.

Það sem þarf að smíða aftur

Hér fer mestur tíminn. Eldri smíðatólin eru stillingar inni í kerfi birgjans, ekki texti eða staðlaðar tengingar, og þau fylgja ekki með. Það gildir líka innan OpenAI.

Actions í sérsniðnum GPT. Leiðbeiningar OpenAI um flutning yfir í viðbætur segja þetta beint: sérsmíðaðar Actions fylgja ekki með, og í stað þeirra á að nota app sem styður sömu aðgerðir eða sérsmíðaðan MCP þjón. Eigandi GPT með Actions þarf því að smíða tengingarnar upp á nýtt hvort sem hann heldur sig hjá OpenAI eða ekki. Þá er skynsamlegt að smíða þær einu sinni sem MCP, því þá nýtast þær í Claude líka. Actions voru skilgreindar með OpenAPI og vísa í API sem er enn til staðar, svo sú lýsing er góður grunnur fyrir MCP þjóninn.

Power Automate flæði. Þau eru samsetning í myndrænu viðmóti, og rökin í þeim eru dreifð yfir mörg skref. Stundum er einfaldast að láta flæðið standa og kalla á það sem vefþjónustu. Stundum er betra að skrifa það upp á nýtt sem lítið forrit eða MCP þjón sem erindrekinn kallar á.

Topics í Copilot Studio. Samtalsflæði með greiningum, skilyrðum og breytum er ekki hægt að flytja beint, því Claude hefur ekkert sem samsvarar þeim. Það þarf að lýsa flæðinu sem færni, og ef ákveðið skref verður að gerast eins í hvert sinn, til dæmis útreikningur eða staðfesting áður en eitthvað er skráð, á það heima í kóða sem erindrekinn kallar á, ekki í leiðbeiningum sem mállíkanið túlkar.

Minnið og sagan. Þau fylgja yfirleitt ekki með, ekki einu sinni úr GPT yfir í viðbót hjá OpenAI. Það er sjaldnast stórt tap, en það þarf að segja notendum frá því fyrirfram.

Prófið á sömu dæmum

Án prófunar veit enginn hvort flutningurinn tókst, aðeins hvort nýi erindrekinn virðist virka. Áður en skipt er borgar sig að taka saman nokkur raunveruleg dæmi um verk sem erindrekinn sinnir í dag, með því svari sem þykir rétt, og keyra svo sömu dæmi í gegnum báðar útgáfur og bera saman. OpenAI ráðleggur það sama í sínum leiðbeiningum um flutninginn: vista nokkrar kunnuglegar fyrirspurnir og góðar niðurstöður, þar á meðal eitt erfiðara dæmi, og bera nýju útgáfuna saman við þær.

Þetta gerir tvennt. Það sýnir hvar leiðbeiningarnar þurfa lagfæringu fyrir nýja mállíkanið, og það gefur mælikvarða sem nýtist næst þegar þarf að skipta. Dæmasafnið er líka texti, og það er jafn auðvelt að taka það með og færnina.

Mállíkönin eru misgóð í mismunandi verkum. Eitt getur staðið sig best í forritun og annað í textavinnslu á íslensku. Með dæmasafni er hægt að velja eftir verkinu frekar en að velja einn birgi fyrir allt fyrirtækið.

Hvar frumritið á að vera

Góð regla er að engin þekking sem skiptir máli sé eingöngu til inni í verkfæri birgjans. Það gildir líka þótt fyrirtækið haldi sig við einn birgi og noti allt sem hann býður upp á. Færni sem er smíðuð beint inni í viðmóti birgjans, eða verkefni sem er bara til þar, er jafn bundið og sérsniðið GPT var.

Frumritið er af tvennu tagi. Verkin sjálf, verkefnin, ákvarðanirnar og staðan, eiga heima í skjalakerfi sem gervigreindin hefur aðgang að. Þar sést hvað er í gangi, hver á hvað og hvers vegna ákvörðun var tekin. Umgjörðin, það er færni, leiðbeiningar erindreka og reglurnar sem þeir vinna eftir, á heima sem textaskrár í útgáfustýrðu kóðasafni eða skjalakerfi. Þá geta sömu skrárnar keyrt í fleiri en einu verkfæri, því hvert verkfæri þarf aðeins þunnt lag sem vísar á sameiginlega frumritið. Tengingar fara í gegnum MCP, og það sem verður að gerast eins í hvert sinn er kóði, ekki ósk í leiðbeiningum.

Erindrekarnir eiga að lesa úr þessum kerfum en ekki eiga þau. Þegar erindreki hefst handa sækir hann stöðuna í skjalakerfið og ber hana saman við umgjörðina. Ef þetta tvennt stangast á á hann að segja frá því í stað þess að velja annað í hljóði.

Þetta skiptir mestu þegar mörg svið vinna svipuð verk. Fjármál, mannauður og sala þurfa öll að taka saman skýrslur, svara fyrirspurnum og fylla út sniðmát. Í stað þess að hvert svið smíði sína útgáfu í sínu verkfæri borgar sig að halda eina skrá yfir færni og erindreka fyrirtækisins: hvað hver gerir, hver ber ábyrgð á henni og hvar frumritið er. Skráin á heima í skjalakerfinu þar sem allir finna hana, frumritin sjálf þar sem umgjörðin er geymd, og verkfærin, hvort sem það er Claude, ChatGPT eða Copilot, fá sína útgáfu þaðan.

Þetta kostar litla aukavinnu ef það er gert frá byrjun. Það sem kostar er að uppgötva eftir ár að allar verklýsingarnar eru læstar inni í einu viðmóti og enginn man lengur hvernig þær urðu til. Þá er flutningurinn ekki lengur nokkurra daga verk heldur endursmíði.