Ný leið

Hugbúnaður í kaupleigu

Kerfið sem þig vantar — án útboðs, án stofnkostnaðar, án þess að ráða teymi. Peritus smíðar kerfið á fáeinum vikum, rekur það og heldur áfram að þróa það fyrir fast mánaðargjald. Kerfið verður aldrei „búið“ — það þróast með rekstrinum þínum.

Innifalið

Innifalið í hverjum samningi

  • Smíði kerfisins frá grunni
  • Hýsing, vöktun, afritun og öryggisuppfærslur
  • Þjónusta og aðstoð
  • Áframhaldandi þróun — nýir eiginleikar innan þróunarheimildar
  • Gögnin þín eru alltaf þín — afhent á tölvutæku formi innan 30 daga ef samningi lýkur
Verðflokkar

Verð ræðst af því hvað kerfið leysir af hólmi

Ekki af tímafjölda. Við förum saman yfir hvað verkefnið kostar þig í dag og finnum rétt verð innan flokksins.

Kerfi S

frá 90.000 kr. á mánuði án vsk.

Leysir af hólmi
Tól + handavinnu
Kerfið afhent á
2–3 vikur
Þróunarheimild
samsvarar allt að 2 klst. hefðbundinnar þróunarvinnu á mánuði

Kerfi M

frá 180.000 kr. á mánuði án vsk.

Leysir af hólmi
Heilt verkferli / hluta af starfi
Kerfið afhent á
3–6 vikur
Þróunarheimild
samsvarar allt að 8 klst. hefðbundinnar þróunarvinnu á mánuði

Kerfi L

frá 350.000 kr. á mánuði án vsk.

Leysir af hólmi
Kjarnakerfi / stóran hluta starfs
Kerfið afhent á
6–10 vikur
Þróunarheimild
samsvarar allt að 16 klst. hefðbundinnar þróunarvinnu á mánuði

Þróunarheimildin miðast við umfang afhentrar vinnu — ekki viðveru — og er afgreidd í reglulegum útgáfum. Ónýtt heimild flyst ekki milli mánaða.

Leiðirnar þrjár

Veldu leiðina sem hentar þínum rekstri

Einkaaðgangur

Leigðu kerfið — engin eignarbyrði

Mánaðargjald: Umsamið gjald verðflokks

  • Binditími eftir verðflokki: S 12 · M 18 · L 24 mánuðir — síðan 12 mánuðir í senn
  • Einkanýting á samningstíma — Peritus býður öðrum ekki sömu lausn
  • Hentar þegar þig vantar kerfið en ekki eignarhaldið

Kaupleiga

Sama mánaðargjald og leiga — en eftir tvö ár geturðu átt kerfið

Mánaðargjald: Sama gjald — skuldbindingin kaupir kaupréttinn

  • Fastir 36 mánuðir
  • Kaupréttur frá 24. til 48. mánaðar: 12 × mánaðargjald
  • Hentar þegar kerfið er kjarninn í rekstrinum og þú vilt eignast það

Samstarfshýsing

Lægsta verðið — stofnkjör til frambúðar

Mánaðargjald: 60% af umsömdu gjaldi

  • Binditími eftir verðflokki: S 12 · M 18 · L 24 mánuðir
  • Peritus má bjóða öðrum lausnina — þess vegna er verðið lægra
  • Seinni viðskiptavinir greiða fullt verð; þú heldur stofnkjörunum

Dæmi — Kerfi M

Leiga eða kaupleiga á grunnverði: 180.000 kr. á mánuði, allt innifalið í Peritus-hýsingu. Viljir þú eignast kerfið eftir tvö ár: 24 × 180.000 + 12 × 180.000 í kaupverð = 6,5 m.kr. samtals — fyrir sérsmíðað kerfi í stöðugri þróun allan tímann. Samstarfshýsing: 108.000 kr. á mánuði. Smíðin greiðist í gegnum binditímann — engin stofngreiðsla, aðeins samningur með lágmarkstíma, líkt og í símaáskrift.

Hýsing

Hjá okkur eða í þínu skýi

Peritus-hýsing (sjálfgefið)

  • Hýsingar- og skýjakostnaður innifalinn upp að viðmiði verðflokks
  • Enginn stofnkostnaður — 0 kr.
  • Þið fáið kerfið í rekstri frá fyrsta degi

Eigið umhverfi (Azure / AWS / GCP / Vercel o.fl.)

  • Uppsetning í ykkar eigin umhverfi — hvort sem það er skýjaumhverfi fyrirtækisins (Azure, AWS, GCP) eða ykkar eigin þjónustureikningar (t.d. Vercel, Supabase) — með ykkar öryggiskröfum og aðgangsstýringu
  • Fyrirtækið greiðir sitt umhverfi beint; mánaðargjald + 15%
  • Uppsetningargjald skv. umfangi umhverfisins — lægra fyrir staðlaða þjónustureikninga, hærra fyrir fyrirtækjaský með sérkröfum — greiðist í upphafi eða dreifist á fyrstu 12 mánuðina

Notkunartengdur kostnaður umfram viðmið — t.d. gervigreindarnotkun kerfisins — er alltaf verðlagður eftir raunnotkun og sundurliðaður á reikningi. Viðbætur: innskráning með fyrirtækjaaðgangi (Google Workspace / Microsoft Entra — innifalin í Kerfi L), sértengingar og lokuð net, aukaumhverfi, öryggis- og reglufylgniskjöl.

Öryggi og persónuvernd

Öryggi er innbyggt frá upphafi

Örugg þróun

Öryggi er hluti af smíðinni frá fyrsta degi: aðgangsstýring, dulkóðun gagna, örugg meðhöndlun lykla og öryggisyfirferð fyrir afhendingu. Öryggisuppfærslur eru innifaldar í rekstrinum í öllum verðflokkum.

Persónuvernd

Vinni kerfið með persónuupplýsingar fylgir vinnslusamningur í samræmi við persónuverndarlög — án aukakostnaðar. Hýsing og gagnageymsla eru innan EES.

Áhættustýring

Öryggis- og áhættuskýrslur fyrir stjórnendur og eftirlitsaðila eru í boði sem viðbót. Verklag Peritus tekur mið af ISO/IEC 27001 í þróun og rekstri.

Öryggi er sérsvið hjá Peritus — kynntu þér öryggisþjónustuna.

Gögnin og áhættan

Útgönguleiðirnar eru innbyggðar

Íslensk fyrirtæki hafa brennt sig á lokuðum sérlausnum sem döguðu uppi. Þess vegna eru útgönguleiðirnar hluti af tilboðinu: gögnin þín eru alltaf þín og afhendast á tölvutæku formi við samningslok — og í kaupleigu áttu beinlínis rétt á að kaupa kerfið og fara með það.

Ferlið

Hvernig byrjum við?

1

Verðmatssamtal

Án skuldbindingar: hvað á kerfið að leysa af hólmi og hvað kostar það þig í dag? Endanlegt mánaðargjald ræðst m.a. af þróunarheimild, fjölda tenginga og mikilvægi kerfisins.

2

Samningur

Við staðfestum verðflokk, leið, hýsingu og afhendingartíma í stuttum samningi — allt fest áður en smíði hefst.

3

Smíðin hefst

Fyrsta greiðsla — og kerfið er í notkun innan 2–10 vikna eftir umfangi.

Hafðu samband

Viltu ræða verkefni eða fá nánari upplýsingar um hvað við höfum upp á að bjóða? Við svörum fljótt.

Sendu okkur skilaboð