Haustráðstefna VSF · 5. nóvember 2026

Þitt eigið gervigreindarkerfi

Verkefnastjórinn sem skalar sjálfan sig

Það er erfitt að sýna heilt kerfi á 30 mínútum. Hér er það í heild: hvernig ég held 50+ verkefnum á lofti með sömu verkefnastjórnunarferlum og þú notar nú þegar. Engin forritunarkunnátta nauðsynleg.

Verkfærin eru til

Verkfærin eru nú þegar til staðar. Það sem vantar er kerfið.

Hversu mörgum verkefnum getur einn verkefnastjóri haldið á lofti?

Flest höfum við prófað Copilot, ChatGPT eða Claude. Verkfærin eru orðin góð, en flest notum við þau eins og spjallglugga: ein spurning, eitt svar, og við sjálf erum milliliðurinn. Munurinn liggur ekki í verkfærinu heldur í því sem er utan um það.

Og það er alltaf einn bolti sem dettur.

Spjallgluggi

  • Ein spurning, eitt svar
  • Þú límir inn stöðuna í hvert sinn
  • Byrjar frá grunni á hverjum degi
  • Þú ert milliliðurinn

→Kerfi

  • Les stöðuna sjálft
  • Vinnur eftir þínu verklagi
  • Man það sem klikkaði síðast
  • Keyrir á föstum tíma og spyr þig þegar á þarf að halda
Ferlarnir sem þú kannt

Ferlarnir þínir, með gervigreind

Þetta eru ferlarnir sem verkefnastjórar læra og nota á hverjum degi. Gervigreindarkerfi þarf ekki nýja aðferðafræði. Það bætir einum eiginleika við hvern feril sem þú kannt nú þegar.

  1. 1Áætlun

    Les allt

    Dregur saman stöðu allra verkefna og leggur til markmið vikunnar.

  2. 2Auðlindir

    Kallar til teymin

    Fleiri auðlindir úr réttu teymi þegar álagið vex, fólk eða gervigreind. Flöskuhálsinn er yfirferðin þín, ekki mannskapur.

  3. 3Staða

    Skráir sjálft

    Hvert skref fer í dagbók verksins. Þú þarft aldrei að elta stöðuna.

  4. 4Áhætta

    Vaktar

    Villur og viðvaranir verða sjálfkrafa að verkbeiðnum til yfirferðar.

  5. 5Breytingar

    Stöðvar og spyr

    Spyr áður en það breytir umfangi, sendir eða birtir nokkuð.

  6. 6Lærdómur

    Man

    Hver mistök verða að skrifaðri reglu sem kerfið les næst.

Svona rek ég Peritus

50+ verkefni.Einn verkefnastjóri.

Gervigreind vinnur að mestu sjálfa vinnuna, eftir ferlum sem ég skrifaði, og stoppar þar sem ég sagði henni að stoppa. Ég set markmiðin, fer yfir og samþykki.

Fyrir viðskiptavini

Afmörkuð verkefni með umfangi, tíma og kostnaði, þar sem samþykki liggur alltaf hjá mér.

Eigin vörur

Vörur í þróun og rekstri, hver með sína áætlun og sinn takt.

Innri kerfi

Bókhald, sala, markaðsmál og kerfið sjálft, sem fylgir sömu ferlum og allt hitt.

Það sem eftir er af síðunni sýnir hvernig hver ferill varð að verklagi, og hvernig þú getur gert það sama.

Kerfið

Eitt verkefni, öll teymin

Svona lítur eitt afmarkað verkefni út í kerfinu: ný þjónustugátt á tólf vikum. Veldu hluta kerfisins, farðu í gegnum kerfið skref fyrir skref eða fylgdu einu verki í gegn. Appelsínugult flæðir niður: markmið og verk. Fjólublátt flæðir upp: staða.

Markmið og verk ↓Staða ↑
YfirsýnSkref 1 af 10

Allt verkefnið

Eitt afmarkað verkefni: ný þjónustugátt fyrir viðskiptavini á tólf vikum, með fasta fjárhagsáætlun. Ég set umfangið, verkefnastjórnin skipuleggur og fjögur teymi leggja til mannskap eftir þörf. Allt fylgir sömu ferlunum.

UmfangÁætlunAuðlindirStaðaÁhættaBreytingarLærdómur
Dæmi

Auðlind getur verið manneskja eða gervigreind, og hvert teymi hefur sitt verklag. Ég rek yfir 50 verkefni svona samtímis.

Samþykki

Öll samþykki á umfangi, tíma og kostnaði enda hjá verkefnastjóranum.

Hvað er inni í verkefnastjórninni?
Hvað er verkefnastjórnin?

Lag ofan á gögnunum sem þú átt

Verkefnastjórnin geymir engin gögn sjálf. Hún er aðstoðarmaður sem vinnur eftir þínu verklagi, innan marka sem þú setur, á tímum sem þú velur, og les og skrifar í gagnageymsluna sem þú notar nú þegar. Veldu hluta til að sjá hvað hann er.

↓markmið og samþykki niður · tillögur og spurningar upp↑

Verkefnastjórnin

Hvað það er

Verklag

Eitt textaskjal fyrir hvert endurtekið verk: hvenær það á við, hvað á að lesa, hvað á að gera, hvað á að skila og hvenær á að stoppa og spyrja. Þetta er allur „kóðinn“.

Hjá þér

Fyrirmæli sem þú skrifar einu sinni, til dæmis í Copilot-erindreka (agent), Claude-verkefni eða sérsniðnu GPT.

Dæmi
Verklag: Vikuáætlun
Hvenær: Mánudaga kl. 8.
Lestu: Öll verkefni og opin verk.
Gerðu: Leggðu til fimm markmið og nefndu eina áhættu fyrir hvert.
Skilaðu: Drögum til mín. Ekki breyta neinu.
Hvernig gerir þú þetta?

Með verkfærunum sem þú átt

Sömu sex hlutarnir, sama hvaða verkfæri þú notar. Veldu umhverfið þitt.

Gagnageymsla

Planner, SharePoint-listi eða Excel

Aðstoðarmaður

Copilot

Verklag

Fyrirmæli í Copilot-erindreka (agent)

Tengingar

Innbyggt þegar Copilot hefur aðgang að SharePoint og Planner

Mörk

„Skrifaðu drög. Ekki senda.“ í hverju verklagi

Taktur

Power Automate eða áminning í Outlook

Engin forritun. Þú þarft bara að skrifa niður hvernig þú vinnur.

Föstudagsskýrslan í sex skrefum

Sex hlutar, einn í einu

Hér er farið í gegnum hvern hluta verkefnastjórnarinnar: til hvers hann er, hvernig þú byrjar og texti sem þú getur prófað strax. Hvert skref byggir á skrefinu á undan. Opnaðu Copilot, ChatGPT eða Claude, afritaðu textann og límdu hann inn. Eftir sex skref áttu verklag sem skrifar stöðuskýrsluna fyrir þig á hverjum föstudegi.

Notaðu tilbúna listann hér fyrir neðan, eða nafnlausan lista, ef fyrirtækið þitt hefur ekki samþykkt aðstoðarmanninn fyrir raunveruleg verkefnagögn.

Tilbúinn listi til að prófa á

Verkefni: Ný þjónustugátt fyrir viðskiptavini. Útgáfa eftir 6 vikur.

- Innskráning með rafrænum skilríkjum. Anna. Í vinnslu. Öryggisyfirferð eftir.
- Hönnun forsíðu. Jón. Lokið.
- Tenging við greiðslukerfi. Sigga. Bíður eftir samningi við greiðsluþjónustu.
- Prófanir með notendum. Óráðið hver. Ekki hafið.
- Kynningarefni fyrir útgáfu. Markaðsmál. Drög tilbúin, bíður eftir útgáfudegi.
- Fjárhagsáætlun. Fjármál. Síðast uppfærð fyrir þremur vikum.
- Gagnaflutningur úr eldra kerfi. Páll. Í vinnslu, engin uppfærsla í tvær vikur.
- Aðgangsstýring starfsfólks. Öryggi. Ekki hafið. Bíður eftir innskráningu.
  1. Skref 1 / 6

    Gagnageymsla

    Einn staður fyrir stöðuna, svo enginn þurfi að elta hana.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Veldu einn stað

      Planner, SharePoint-listi eða Excel-skjal. Það skiptir minna máli hvað þú velur en að allir noti sama staðinn.

    2. 2

      Einn dálkur fyrir það sem verkið bíður eftir

      Þegar hvert verk segir hvað það bíður eftir sést strax hvað er hægt að vinna í dag og hvað er stopp.

    3. 3

      Ákvarðanir á sama stað

      Hvað var ákveðið, hver ákvað það og af hverju. Ákvörðun er aldrei breytt, aðeins leyst af hólmi, svo rökin standa eftir.

    VerkStaðaÁbyrgðBíður eftir
    InnskráningÍ vinnsluAnnaÖryggisyfirferð
    GreiðslukerfiStoppSiggaSamningur
    PrófanirEkki hafiðVANTARVANTAR
    AðgangsstýringEkki hafiðÖryggiInnskráning

    Prófaðu

    Hér fyrir neðan er verkefnalistinn minn. Settu hann upp í eina töflu með dálkunum: Verk, Staða, Ábyrgð, Næsta skref, Bíður eftir. Ef upplýsingar vantar í dálk, skrifaðu VANTAR og ekki giska. Bentu mér svo á þau þrjú verk þar sem mest vantar.
    
    [Límdu verkefnalistann hér]

    Ráð: Mikilvægasti dálkurinn er „Bíður eftir“. Hann segir þér hvað er óhindrað og hvað ekki.

    Dæmi

    Átta verk úr tveimur Excel-skjölum og einum tölvupóstþræði verða að einni töflu. Þá sést að tvö verk bíða eftir sama hlutnum: innskráningunni.

    Varastu

    Að geyma stöðuna á tveimur stöðum. Annar verður alltaf úreltur. Veldu einn og hættu að uppfæra hinn.

  2. Skref 2 / 6

    Aðstoðarmaður

    Les, dregur saman og sér mynstrin áður en þú gerir það.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Notaðu þann sem fyrirtækið hefur samþykkt

      Copilot, ChatGPT og Claude duga öll. Það sem skiptir máli er að þú megir nota hann á gögn fyrirtækisins.

    2. 2

      Gefðu honum hlutverk

      Byrjaðu á „Þú ert aðstoðarmaður verkefnastjóra“. Þá veit hann með hvaða augum hann á að lesa gögnin.

    3. 3

      Biddu um rök, ekki bara svar

      „Af hverju heldurðu það?“ greinir á milli góðra ábendinga og ágiskana.

    1. !

      Gagnaflutningurinn

      Engin uppfærsla í tvær vikur

    2. !

      Prófanir með notendum

      Enginn ber ábyrgð

    3. !

      Aðgangsstýringin

      Bíður eftir innskráningu, sem bíður eftir öryggi

    Prófaðu

    Þú ert aðstoðarmaður verkefnastjóra. Lestu töfluna hér að ofan og segðu mér þrjú atriði sem ég ætti að hafa áhyggjur af í þessari viku, og af hverju. Fyrir hvert atriði: hvað þú sást í gögnunum, hver áhættan er og ein spurning sem ég ætti að spyrja ábyrgðaraðilann. Ekki bæta við upplýsingum sem eru ekki í töflunni.

    Ráð: Biddu alltaf um rök. „Af hverju heldurðu það?“ er besta spurningin sem þú getur spurt.

    Dæmi

    Hann bendir á að gagnaflutningurinn hefur ekki hreyfst í tvær vikur, að enginn ber ábyrgð á prófunum með notendum og að aðgangsstýringin bíður eftir innskráningunni, sem bíður sjálf eftir öryggisyfirferð.

    Varastu

    Að treysta svari sem vísar ekki í gögnin. Biddu hann að segja hvaðan hver fullyrðing kemur.

  3. Skref 3 / 6

    Verklag

    Þú skrifar það einu sinni, og það virkar eins í hvert sinn.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Eitt verk sem þú endurtekur í hverri viku

      Stöðuskýrslan er gott fyrsta verk: hún er endurtekin, afmörkuð og allir vita hvernig góð skýrsla lítur út.

    2. 2

      Skrifaðu það eins og fyrir nýjan starfsmann

      Hvenær, hvað á að lesa, hvað á að skila og hvenær á að stoppa og spyrja. Sex línur duga.

    3. 3

      Þegar það klikkar: bættu við reglu

      Ekki byrja upp á nýtt. Hver mistök verða að einni línu sem kemur í veg fyrir að þau endurtaki sig.

    Verklag: Stöðuskýrsla

    Hvenær: Föstudaga kl. 14

    Lestu: Öll verk í gangi

    Fyrir hvert verk: Hvað kláraðist, hvað tafðist, af hverju

    Skilaðu: Drögum til stýrihóps

    Spurðu mig: Ef verk hefur ekki hreyfst í tvær vikur

    + Ný regla: Ef ábyrgðaraðila vantar, skrifaðu VANTAR

    Prófaðu

    Skrifaðu verklag fyrir stöðuskýrslu sem ég keyri á föstudögum. Notaðu það sem við gerðum hér að ofan sem fyrirmynd. Hafðu það í sex línum með þessum fyrirsögnum: Hvenær, Lestu, Fyrir hvert verk, Skilaðu, Spurðu mig, Ekki gera. Ég ætla að vista textann og líma hann inn fyrst í hverri viku.

    Ráð: Vistaðu svarið í skjali. Þetta er verklagið þitt. Þegar eitthvað klikkar, bættu við reglu í stað þess að byrja upp á nýtt. Þetta er allur „kóðinn“: sex línur á mannamáli.

    Dæmi

    Fyrstu vikuna giskar aðstoðarmaðurinn á hver ber ábyrgð á verki sem enginn á. Þú bætir við einni línu: „Ef ábyrgðaraðila vantar, skrifaðu VANTAR.“ Það gerist ekki aftur.

    Varastu

    Að skrifa verklagið í spjallið og týna því. Vistaðu það í skjali sem þú límir inn eða tengir.

  4. Skref 4 / 6

    Tengingar

    Aðstoðarmaðurinn les gögnin sjálfur, svo þú hættir að líma inn.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Byrjaðu á að líma inn

      Að líma inn gögnin er líka tenging. Hún virkar strax og þú sérð nákvæmlega hvað aðstoðarmaðurinn fær.

    2. 2

      Vísaðu beint í skjalið eða listann

      Í Copilot vísarðu í skjal eða lista. Í ChatGPT og Claude setur þú skjölin í verkefni. Þá hættir þú að líma.

    3. 3

      Gefðu aðeins aðgang að því sem verkið þarf

      Stöðuskýrslan þarf að lesa verkefnalistann, ekki launaskrána.

    • Verkefnalisti
    • Fundargerðir
    • Ákvarðanir
    • Launaskrá✕
    • Samningar✕
    Aðstoðarmaður

    Prófaðu

    Hér er verklagið mitt:
    
    [Límdu verklagið hér]
    
    Hvaða gögn þarf það að lesa til að virka, og hvaða gögn ætti það alls ekki að hafa aðgang að? Settu svarið upp sem tvo lista: Þarf aðgang að, og Má ekki sjá.

    Ráð: Vísaðu beint í skjalið eða listann í stað þess að líma inn. Í Copilot vísarðu í skjal eða lista, og í ChatGPT og Claude setur þú skjölin í verkefni. Gefðu aðeins aðgang að því sem verkið þarf.

    Dæmi

    Þarf aðgang að: verkefnalistanum og fundargerðum stýrihóps. Má ekki sjá: launaskrá, samninga við birgja og persónuupplýsingar.

    Varastu

    Að gefa aðgang að öllu til öryggis. Því meira sem hann les, því meira getur farið úrskeiðis.

  5. Skref 5 / 6

    Mörk

    Það sem gerir þér kleift að treysta kerfinu.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Gerir sjálft

      Það sem er öruggt að endurtaka: lesa, draga saman og skrifa drög.

    2. 2

      Spyr fyrst

      Allt sem fer til annarra eða lofar einhverju: senda póst, birta efni og færa dagsetningar.

    3. 3

      Aldrei

      Það sem verður ekki tekið til baka: greiða reikninga, eyða gögnum og snerta kerfi í rekstri.

    Myndir þú leyfa þetta?

    Smelltu á hvert atriði og veldu.

    • Skrifa drög að stöðuskýrslu

    • Senda stöðuskýrsluna til stýrihóps

    • Færa skilafrest verks um viku

    • Samþykkja reikning frá birgja

    Prófaðu

    Bættu þremur köflum við verklagið mitt: Gerir sjálft, Spyr fyrst og Aldrei. Byrjaðu Gerir sjálft á: Les, dregur saman og skrifar drög. Byrjaðu Spyr fyrst á: Sendir eitthvað til annarra. Byrjaðu Aldrei á: Breytir gögnum í gagnageymslunni. Bættu við tveimur atriðum í hvern kafla sem passa við stöðuskýrslu.

    Ráð: Ef þú ert í vafa, settu það í Spyr fyrst. Þú getur alltaf losað um seinna.

    Dæmi

    Flöskuhálsinn er ekki mannskapur heldur yfirferðin þín. Kerfið getur unnið eins mörg verk og þú vilt, en þú getur aðeins farið yfir nokkur í einu. Mörkin ráða hvað fer framhjá þér og hvað ekki.

    Varastu

    Að setja allt í Spyr fyrst og verða sjálf/ur flöskuhálsinn. Færðu það sem hefur gengið vel yfir í Gerir sjálft.

  6. Skref 6 / 6

    Taktur

    Án takts er þetta enn eitt verkfærið sem þú gleymir.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Endurtekin áminning

      Föstudagar kl. 14 í dagatalinu, með heitinu „Keyra stöðuskýrslu“.

    2. 2

      Verklagið í lýsingunni

      Þegar áminningin kemur er allt á einum stað: þú opnar hana, afritar verklagið og keyrir.

    3. 3

      Seinna: láttu það keyra sjálfkrafa

      Þegar verklagið hefur gengið vel í nokkrar vikur geturðu látið það keyra sjálfkrafa á föstum tíma og setja drögin í pósthólfið þitt.

    MánVikuáætlun
    Þri
    Mið
    Fim
    FösStöðuskýrsla kl. 14
    ✉ Drög bíða þín

    Prófaðu

    Breyttu verklaginu þannig að það keyri vikulega. Bættu við: berðu stöðuna saman við síðustu viku og segðu hvað hreyfðist, hvað hreyfðist ekki og hvað er nýtt. Ef verk hefur ekki hreyfst í tvær vikur, settu það efst í skýrsluna.

    Ráð: Settu endurtekna áminningu í dagatalið: föstudagar kl. 14, „Keyra stöðuskýrslu“, með verklagið í lýsingunni. Seinna geturðu látið það keyra sjálfkrafa.

    Dæmi

    Svona óx þetta hjá mér, eitt verklag í einu: fyrst stöðuskýrslan, svo vikuáætlunin á mánudögum, vikuyfirferðin á föstudögum og loks mánaðaryfirferðin fyrsta mánudag í mánuði. Kerfið undirbýr hvern fund. Ég mæti og ákveð.

    Varastu

    Að keyra það þegar þú manst eftir því. Án fasts tíma hættir þú að nota það á þriðju viku.

Ein áskorun

Nú er komið að þér

Á föstudaginn: keyrðu fyrstu skýrsluna.

Kerfið tekur við söfnuninni, skráningunni og fyrstu drögunum. Þú færð tímann fyrir fólkið, og það er þar sem leiðtoginn skiptir máli.

  1. 1Settu listann í töflu→
  2. 2Spurðu um áhætturnar→
  3. 3Vistaðu verklagið→
  4. 4Veldu gögnin→
  5. 5Settu mörkin→
  6. 6Settu taktinn→

Svo vex það í lögum

  1. Eitt verklag
  2. + vikuáætlun
  3. + áhættulisti
  4. + ákvarðanaskrá
Verkefnastjórinn hættir ekki að halda boltum á lofti. Hann fær liðsauka sem heldur fleiri boltum og stýrir með höndina á öxlinni.

Eftir föstudaginn

  1. 1

    Spjallmenni og eitt verklag

    Þú gerir

    Skrifaðu eitt verklag, til dæmis stöðuskýrsluna. Límdu það og verkefnalistann inn í spjallmennið á föstudögum.

    Þú færð

    Fyrstu drög að skýrslunni á örfáum mínútum, alltaf eins uppsett.

  2. 2

    Aðstoðarmaður tengdur gögnunum

    Þú gerir

    Settu verklagið í Copilot-erindreka (agent) eða Claude-verkefni og gefðu því aðgang að gagnageymslunni.

    Þú færð

    Þú hættir að líma inn. Aðstoðarmaðurinn les stöðuna sjálfur.

  3. 3

    Takturinn keyrir sjálfur

    Þú gerir

    Láttu verklagið keyra á tíma og bættu við næsta verklagi, til dæmis vikuáætlun, áhættulista eða ákvarðanaskrá.

    Þú færð

    Drögin bíða þín. Þú ferð yfir og samþykkir. Kerfið vex um eitt verklag í einu.

Ég stjórna gervigreind. Þú stjórnar líka fólki.

Bættu við ferlunum sem þú notar fyrir teymið. Þá er það þitt kerfi.

Algengar spurningar

Þarf ég að kunna að forrita?+

Nei. Verklag er textaskjal á mannamáli. Ef þú getur skrifað verkferil fyrir nýjan starfsmann getur þú skrifað verklag fyrir aðstoðarmann.

Hvar eru gögnin?+

Áfram í gagnageymslunni þinni: Planner, SharePoint, Notion, Jira eða Excel. Verkefnastjórnin geymir engin gögn sjálf, hún les og skrifar í þau sem þú átt.

Hvað með trúnað og persónuupplýsingar?+

Notaðu aðstoðarmann sem fyrirtækið þitt hefur þegar samþykkt, gefðu honum aðeins aðgang að því sem verklagið þarf og settu mörkin skýrt: drög, ekki sending.

Hvað ef gervigreindin gerir mistök?+

Já, það gerist. Þess vegna skrifar hún drög og þú samþykkir. Hver mistök verða að nýrri reglu í verklaginu, svo þau endurtaki sig ekki.

Virkar þetta líka með fólki?+

Já. Auðlind getur verið manneskja eða gervigreind. Sama verklag, sama stöðuskráning og sömu mörk gilda fyrir báðar.

Hvar byrja ég?+

Á stigi eitt: veldu eitt verk sem þú endurtekur í hverri viku, skrifaðu það niður og prófaðu það á föstudaginn.

Spunagreind.isLærðu þetta skref fyrir skref

Verkefnastjóri

Hlutverk fyrir lengra komnaFylgir áskrift
námskeið
8
námskeið
verkefni
64
verkefni
á íslensku
100 %
á íslensku

Þú lærir að nota gervigreind sem vinnufélaga í verkefninu: verkefnasvæði sem heldur utan um áætlun, áhættur og ákvarðanir, og fundargerðir sem verða að aðgerðalistum. Þú æfir þig í þínu eigin verkfæri, hvort sem það er ChatGPT, Claude, Gemini eða Copilot.

Byrja sem verkefnastjóri→

Verkefnastjóri er hluti af áskrift að Spunagreind.is. Grunnnámskeiðin geturðu prófað ókeypis áður en þú velur áskrift. Sjá verðskrá →

Námskeiðin

  1. 1Leiðarvísir: gervigreind fyrir verkefnastjóra
  2. 2Grunnatriði gervigreindar
  3. 3Fyrirmæli til gervigreindar: grunnur
  4. 4Gervigreind og starf verkefnastjórans
  5. 5Verkefni með gervigreind
  6. 6Gervigreindarverkfærið þitt: grunnur
  7. 7Gervigreindarverkfærið þitt: lengra komið
  8. 8Þín röð: verkefni frá A til Ö með gervigreind

Viltu sjá hvernig þetta virkar?

Ég sýni þér hvernig það lítur út í raun og hvar þú gætir byrjað.

Hafa samband

Lárus Hjartarson · larus@peritus.is