Haustráðstefna VSF · 5. nóvember 2026

Þitt eigið gervigreindarkerfi

Verkefnastjórinn sem skalar sjálfan sig

Það er erfitt að sýna heilt kerfi á 30 mínútum. Hér er það í heild: hvernig ég held 50+ verkefnum á lofti með sömu verkefnastjórnunarferlum og þú notar nú þegar. Engin forritunarkunnátta nauðsynleg.

Verkfærin eru til

Verkfærin eru nú þegar til staðar. Það sem vantar er kerfið.

Hversu mörgum verkefnum getur einn verkefnastjóri haldið á lofti?

Flest höfum við prófað Copilot, ChatGPT eða Claude. Verkfærin eru orðin góð, en flest notum við þau eins og spjallglugga: ein spurning, eitt svar, og við sjálf erum milliliðurinn. Munurinn liggur ekki í verkfærinu heldur í því sem er utan um það.

Og það er alltaf einn bolti sem dettur.

Spjallgluggi

  • Ein spurning, eitt svar
  • Þú límir inn stöðuna í hvert sinn
  • Byrjar frá grunni á hverjum degi
  • Þú ert milliliðurinn

→Kerfi

  • Les stöðuna sjálft
  • Vinnur eftir þínu verklagi
  • Man það sem klikkaði síðast
  • Keyrir á föstum tíma og spyr þig þegar á þarf að halda
Ferlarnir sem þú kannt

Ferlarnir þínir, með gervigreind

Þetta eru ferlarnir sem verkefnastjórar læra og nota á hverjum degi. Gervigreindarkerfi þarf ekki nýja aðferðafræði. Það bætir einum eiginleika við hvern feril sem þú kannt nú þegar.

  1. 1Áætlun

    Les allt

    Dregur saman stöðu allra verkefna og leggur til markmið vikunnar.

  2. 2Auðlindir

    Kallar til teymin

    Fleiri auðlindir úr réttu teymi þegar álagið vex, fólk eða gervigreind. Flöskuhálsinn er yfirferðin þín, ekki mannskapur.

  3. 3Staða

    Skráir sjálft

    Hvert skref fer í dagbók verksins. Þú þarft aldrei að elta stöðuna.

  4. 4Áhætta

    Vaktar

    Villur og viðvaranir verða sjálfkrafa að verkbeiðnum til yfirferðar.

  5. 5Breytingar

    Stöðvar og spyr

    Spyr áður en það breytir umfangi, sendir eða birtir nokkuð.

  6. 6Lærdómur

    Man

    Hver mistök verða að skrifaðri reglu sem kerfið les næst.

Svona rek ég Peritus

50+ verkefni.Einn verkefnastjóri.

Gervigreind vinnur að mestu sjálfa vinnuna, eftir ferlum sem ég skrifaði, og stoppar þar sem ég sagði henni að stoppa. Ég set markmiðin, fer yfir og samþykki.

Fyrir viðskiptavini

Afmörkuð verkefni með umfangi, tíma og kostnaði, þar sem samþykki liggur alltaf hjá mér.

Eigin vörur

Vörur í þróun og rekstri, hver með sína áætlun og sinn takt.

Innri kerfi

Bókhald, sala, markaðsmál og kerfið sjálft, sem fylgir sömu ferlum og allt hitt.

Það sem eftir er af síðunni sýnir hvernig hver ferill varð að verklagi, og hvernig þú getur gert það sama.

Kerfið

Eitt verkefni, öll teymin

Svona lítur eitt afmarkað verkefni út í kerfinu: ný þjónustugátt á tólf vikum. Veldu hluta kerfisins, farðu í gegnum kerfið skref fyrir skref eða fylgdu einu verki í gegn. Appelsínugult flæðir niður: markmið og verk. Fjólublátt flæðir upp: staða.

Markmið og verk ↓Staða ↑
YfirsýnSkref 1 af 10

Allt verkefnið

Eitt afmarkað verkefni: ný þjónustugátt fyrir viðskiptavini á tólf vikum, með fasta fjárhagsáætlun. Ég set umfangið, verkefnastjórnin skipuleggur og fjögur teymi leggja til mannskap eftir þörf. Allt fylgir sömu ferlunum.

UmfangÁætlunAuðlindirStaðaÁhættaBreytingarLærdómur
Dæmi

Auðlind getur verið manneskja eða gervigreind, og hvert teymi hefur sitt verklag. Ég rek yfir 50 verkefni svona samtímis.

Samþykki

Öll samþykki á umfangi, tíma og kostnaði enda hjá verkefnastjóranum.

Hvað er inni í verkefnastjórninni?
Hvað er verkefnastjórnin?

Lag ofan á gögnunum sem þú átt

Verkefnastjórnin geymir engin gögn sjálf. Hún er aðstoðarmaður sem vinnur eftir þínu verklagi, innan marka sem þú setur, á tímum sem þú velur, og les og skrifar í gagnageymsluna sem þú notar nú þegar. Veldu hluta til að sjá hvað hann er.

↓markmið og samþykki niður · tillögur og spurningar upp↑

Verkefnastjórnin

Hvað það er

Verklag

Eitt textaskjal fyrir hvert endurtekið verk: hvenær það á við, hvað á að lesa, hvað á að gera, hvað á að skila og hvenær á að stoppa og spyrja. Þetta er allur „kóðinn“.

Hjá þér

Fyrirmæli sem þú skrifar einu sinni, til dæmis í Copilot-erindreka (agent), Claude-verkefni eða sérsniðnu GPT.

Dæmi
Verklag: Vikuáætlun
Hvenær: Mánudaga kl. 8.
Lestu: Öll verkefni og opin verk.
Gerðu: Leggðu til fimm markmið og nefndu eina áhættu fyrir hvert.
Skilaðu: Drögum til mín. Ekki breyta neinu.
Hvernig gerir þú þetta?

Með verkfærunum sem þú átt

Sömu sex hlutarnir, sama hvaða verkfæri þú notar. Veldu umhverfið þitt.

Gagnageymsla

Planner, SharePoint-listi eða Excel

Aðstoðarmaður

Copilot

Verklag

Fyrirmæli í Copilot-erindreka (agent)

Tengingar

Innbyggt þegar Copilot hefur aðgang að SharePoint og Planner

Mörk

„Skrifaðu drög. Ekki senda.“ í hverju verklagi

Taktur

Power Automate eða áminning í Outlook

Engin forritun. Þú þarft bara að skrifa niður hvernig þú vinnur.

Föstudagsskýrslan í sex skrefum

Sex hlutar, einn í einu

Hér er farið í gegnum hvern hluta verkefnastjórnarinnar: til hvers hann er, hvernig þú byrjar og texti sem þú getur prófað strax. Hvert skref byggir á skrefinu á undan. Opnaðu Copilot, ChatGPT eða Claude, afritaðu textann og límdu hann inn. Hver texti byrjar á því að spyrja þig nokkurra spurninga um þitt umhverfi, svo sem hvaða verkefnakerfi þú notar, svo svarið passi við þitt verkefni. Svaraðu „prufa“ til að nota tilbúna listann. Eftir sex skref áttu verklag sem skrifar stöðuskýrsluna fyrir þig á hverjum föstudegi.

Notaðu tilbúna listann hér fyrir neðan, eða nafnlausan lista, ef fyrirtækið þitt hefur ekki samþykkt aðstoðarmanninn fyrir raunveruleg verkefnagögn.

Tilbúinn listi til að prófa á

Verkefni: Ný þjónustugátt fyrir viðskiptavini. Útgáfa eftir 6 vikur.

- Innskráning með rafrænum skilríkjum. Anna. Í vinnslu. Öryggisyfirferð eftir.
- Hönnun forsíðu. Jón. Lokið.
- Tenging við greiðslukerfi. Sigga. Bíður eftir samningi við greiðsluþjónustu.
- Prófanir með notendum. Óráðið hver. Ekki hafið.
- Kynningarefni fyrir útgáfu. Markaðsmál. Drög tilbúin, bíður eftir útgáfudegi.
- Fjárhagsáætlun. Fjármál. Síðast uppfærð fyrir þremur vikum.
- Gagnaflutningur úr eldra kerfi. Páll. Í vinnslu, engin uppfærsla í tvær vikur.
- Aðgangsstýring starfsfólks. Öryggi. Ekki hafið. Bíður eftir innskráningu.
  1. Skref 1 / 6

    Gagnageymsla

    Einn staður fyrir stöðuna, svo enginn þurfi að elta hana.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Veldu einn stað

      Planner, SharePoint-listi eða Excel-skjal. Það skiptir minna máli hvað þú velur en að allir noti sama staðinn.

    2. 2

      Einn dálkur fyrir það sem verkið bíður eftir

      Þegar hvert verk segir hvað það bíður eftir sést strax hvað er hægt að vinna í dag og hvað er stopp.

    3. 3

      Ákvarðanir á sama stað

      Hvað var ákveðið, hver ákvað það og af hverju. Ákvörðun er aldrei breytt, aðeins leyst af hólmi, svo rökin standa eftir.

    VerkStaðaÁbyrgðBíður eftir
    InnskráningÍ vinnsluAnnaÖryggisyfirferð
    GreiðslukerfiStoppSiggaSamningur
    PrófanirEkki hafiðVANTARVANTAR
    AðgangsstýringEkki hafiðÖryggiInnskráning

    Prófaðu

    # Hlutverk
    Þú ert reyndur verkefnastjóri og aðstoðarmaður minn. Við ætlum að byggja saman, í sex skrefum, verklag sem skrifar stöðuskýrsluna mína á hverjum föstudegi. Þetta er skref 1 af 6: ein tafla sem heldur utan um stöðuna.
    
    # Byrjaðu á að spyrja mig
    Spurðu mig þessara spurninga, allra í einu, og bíddu eftir svörunum. Ekki vinna úr listanum fyrr en ég hef svarað.
    1. Í hvaða kerfi heldurðu utan um verkin í dag? (Planner, Jira, Asana, Monday, Trello, SharePoint-listi, Excel eða tölvupóstur)
    2. Hvaða stöður notarðu? (til dæmis Ekki hafið, Í vinnslu, Stopp, Lokið)
    3. Hver les stöðuskýrsluna: stýrihópur, teymið eða viðskiptavinur?
    4. Hver er næsti stóri áfangi verkefnisins og hvenær er hann?
    Ef ég svara „prufa“, notaðu: Excel, stöðurnar hér að ofan, stýrihópur, útgáfa eftir 6 vikur.
    
    # Verkefni
    Settu listann upp í eina töflu með dálkunum:
    Verk | Staða | Ábyrgð | Næsta skref | Bíður eftir | Heimild
    - Staða: aðeins stöðurnar sem ég nefndi.
    - Bíður eftir: annað verk í töflunni, ákvörðun eða utanaðkomandi aðili. „Ekkert“ ef verkið er óhindrað.
    - Heimild: stutt orðrétt brot úr listanum sem línan byggir á.
    
    # Reglur
    - Ekki giska. Ef upplýsingar vantar, skrifaðu VANTAR.
    - Ekki sameina, sleppa eða bæta við verkum.
    - Ef tvö eða fleiri verk bíða eftir sama hlutnum, merktu það sérstaklega.
    
    # Skilaðu
    1. Töflunni.
    2. Þeim þremur verkum þar sem mest vantar, með einni spurningu sem fyllir í hvert.
    3. Tveimur setningum um hvernig ég set dálkinn „Bíður eftir“ upp í kerfinu sem ég nefndi.
    
    # Áður en þú svarar
    Farðu yfir: er hvert verk úr listanum í töflunni, og vantar hvert VANTAR í raun í gögnin?
    
    <verkefnalisti>
    [Límdu verkefnalistann hér, eða tilbúna listann af síðunni]
    </verkefnalisti>

    Ráð: Mikilvægasti dálkurinn er „Bíður eftir“. Hann segir þér hvað er óhindrað og hvað ekki.

    Dæmi

    Átta verk úr tveimur Excel-skjölum og einum tölvupóstþræði verða að einni töflu. Þá sést að tvö verk bíða eftir sama hlutnum: innskráningunni.

    Varastu

    Að geyma stöðuna á tveimur stöðum. Annar verður alltaf úreltur. Veldu einn og hættu að uppfæra hinn.

  2. Skref 2 / 6

    Aðstoðarmaður

    Les, dregur saman og sér mynstrin áður en þú gerir það.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Notaðu þann sem fyrirtækið hefur samþykkt

      Copilot, ChatGPT og Claude duga öll. Það sem skiptir máli er að þú megir nota hann á gögn fyrirtækisins.

    2. 2

      Gefðu honum hlutverk

      Byrjaðu á „Þú ert aðstoðarmaður verkefnastjóra“. Þá veit hann með hvaða augum hann á að lesa gögnin.

    3. 3

      Biddu um rök, ekki bara svar

      „Af hverju heldurðu það?“ greinir á milli góðra ábendinga og ágiskana.

    1. !

      Gagnaflutningurinn

      Engin uppfærsla í tvær vikur

    2. !

      Prófanir með notendum

      Enginn ber ábyrgð

    3. !

      Aðgangsstýringin

      Bíður eftir innskráningu, sem bíður eftir öryggi

    Prófaðu

    # Hlutverk
    Þú ert aðstoðarmaður verkefnastjóra, gagnrýninn og nákvæmur. Þú lest gögnin eins og reyndur verkefnastjóri í vikulegri yfirferð: þú leitar að því sem er stopp, því sem enginn á og keðjum þar sem eitt verk heldur öðru föstu.
    
    # Samhengi
    Þetta er skref 2 af 6. Taflan úr skrefi 1 er hér fyrir ofan í samtalinu. Ef hún er það ekki, biddu mig að líma hana inn.
    
    # Byrjaðu á að spyrja mig
    Spurðu mig, allra í einu, og bíddu eftir svörunum:
    1. Hvað vegur þyngst í þessu verkefni: tími, kostnaður eða gæði?
    2. Hefur stýrihópurinn eða verkefniseigandinn sérstakar áhyggjur af einhverju núna?
    3. Hvaða dagur er í dag, og hvenær er næsti stöðufundur?
    Ef ég svara „prufa“, notaðu: tími, innskráningin, dagurinn í dag og fundur á föstudag.
    
    # Verkefni
    Finndu þrjú atriði sem ég ætti að hafa áhyggjur af í þessari viku og raðaðu þeim eftir áhrifum á næsta áfanga.
    Fyrir hvert atriði:
    - Hvað þú sást: vísaðu í línuna í töflunni.
    - Áhættan: hvað gerist ef ekkert er gert, og hvenær það kemur í ljós.
    - Spurningin: ein spurning til ábyrgðaraðilans sem er hægt að svara með staðreynd, ekki já eða nei.
    - Vissa: Mikil, Miðlungs eða Lítil, og af hverju.
    
    # Reglur
    - Ekki bæta við upplýsingum sem eru ekki í töflunni. Ef þú ályktar, segðu að það sé ályktun.
    - Leitaðu sérstaklega að keðjum: verk sem bíður eftir verki sem sjálft er stopp eða án ábyrgðaraðila.
    - Engin almenn ráð um verkefnastjórnun. Aðeins það sem á við þessa töflu.
    
    # Skilaðu
    Atriðunum þremur, og síðast einni línu sem byrjar á: „Það fyrsta sem ég myndi gera á mánudag:“

    Ráð: Biddu alltaf um rök. „Af hverju heldurðu það?“ er besta spurningin sem þú getur spurt.

    Dæmi

    Hann bendir á að gagnaflutningurinn hefur ekki hreyfst í tvær vikur, að enginn ber ábyrgð á prófunum með notendum og að aðgangsstýringin bíður eftir innskráningunni, sem bíður sjálf eftir öryggisyfirferð.

    Varastu

    Að treysta svari sem vísar ekki í gögnin. Biddu hann að segja hvaðan hver fullyrðing kemur.

  3. Skref 3 / 6

    Verklag

    Þú skrifar það einu sinni, og það virkar eins í hvert sinn.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Eitt verk sem þú endurtekur í hverri viku

      Stöðuskýrslan er gott fyrsta verk: hún er endurtekin, afmörkuð og allir vita hvernig góð skýrsla lítur út.

    2. 2

      Skrifaðu það eins og fyrir nýjan starfsmann

      Hvenær, hvað á að lesa, hvað á að skila og hvenær á að stoppa og spyrja. Sex línur duga.

    3. 3

      Þegar það klikkar: bættu við reglu

      Ekki byrja upp á nýtt. Hver mistök verða að einni línu sem kemur í veg fyrir að þau endurtaki sig.

    Verklag: Stöðuskýrsla

    Hvenær: Föstudaga kl. 14

    Lestu: Öll verk í gangi

    Fyrir hvert verk: Hvað kláraðist, hvað tafðist, af hverju

    Skilaðu: Drögum til stýrihóps

    Spurðu mig: Ef verk hefur ekki hreyfst í tvær vikur

    + Ný regla: Ef ábyrgðaraðila vantar, skrifaðu VANTAR

    Prófaðu

    # Hlutverk
    Þú ert sérfræðingur í að skrifa verklag sem aðrir geta fylgt orðrétt, hvort sem það er nýr starfsmaður eða gervigreind. Gott verklag er stutt, nákvæmt og segir hvenær á að stoppa og spyrja.
    
    # Samhengi
    Þetta er skref 3 af 6. Við settum upp töflu (skref 1) og fórum yfir hana (skref 2). Nú breytum við því í verklag sem ég get keyrt aftur í hverri viku.
    
    # Byrjaðu á að spyrja mig
    Spurðu mig, allra í einu, og bíddu eftir svörunum:
    1. Hvaða dag og klukkan hvað á skýrslan að vera tilbúin?
    2. Hvernig fer hún til lesenda: tölvupóstur, Teams, Word-skjal eða fundur?
    3. Hve löng má hún vera? (til dæmis hálf síða, eða það sem lesið er á tveimur mínútum)
    4. Hvað verður alltaf að vera með: áhættur, ákvarðanir sem bíða, fjárhagsáætlun, næstu áfangar?
    5. Hvernig tón vilja lesendurnir: stuttan og beinan, eða ítarlegan?
    Ef ég svara „prufa“, notaðu: föstudagur kl. 14, tölvupóstur til stýrihóps, hálf síða, áhættur og ákvarðanir, stuttur og beinn.
    
    # Verkefni
    1. Skrifaðu verklagið með nákvæmlega þessum fyrirsögnum: Hvenær, Lestu, Fyrir hvert verk, Skilaðu, Spurðu mig, Ekki gera. Ein til þrjár línur undir hverri, sem fyrirmæli til aðstoðarmanns sem veit ekkert um þetta samtal.
    2. Skrifaðu sniðmát skýrslunnar: fyrirsagnir og ein lína um hvað fer undir hverja.
    3. Keyrðu verklagið strax á töflunni úr skrefi 1 og sýndu mér skýrsluna sem kemur út.
    4. Nefndu það atriði í verklaginu sem er líklegast til að klikka, og stingdu upp á einni reglu sem kemur í veg fyrir það.
    
    # Reglur
    - Verklagið verður að standa eitt og sér: engar tilvísanir í „hér að ofan“ eða „eins og áður“.
    - Undir Ekki gera verður þessi lína að vera með: „Ef ábyrgðaraðila vantar, skrifaðu VANTAR. Ekki giska.“
    - Settu verklagið og sniðmátið í sinn kóðareitinn hvort, svo ég geti afritað þau og vistað í skjali.

    Ráð: Vistaðu svarið í skjali. Þetta er verklagið þitt. Þegar eitthvað klikkar, bættu við reglu í stað þess að byrja upp á nýtt. Þetta er allur „kóðinn“: sex línur á mannamáli.

    Dæmi

    Fyrstu vikuna giskar aðstoðarmaðurinn á hver ber ábyrgð á verki sem enginn á. Þú bætir við einni línu: „Ef ábyrgðaraðila vantar, skrifaðu VANTAR.“ Það gerist ekki aftur.

    Varastu

    Að skrifa verklagið í spjallið og týna því. Vistaðu það í skjali sem þú límir inn eða tengir.

  4. Skref 4 / 6

    Tengingar

    Aðstoðarmaðurinn les gögnin sjálfur, svo þú hættir að líma inn.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Byrjaðu á að líma inn

      Að líma inn gögnin er líka tenging. Hún virkar strax og þú sérð nákvæmlega hvað aðstoðarmaðurinn fær.

    2. 2

      Vísaðu beint í skjalið eða listann

      Í Copilot vísarðu í skjal eða lista. Í ChatGPT og Claude setur þú skjölin í verkefni. Þá hættir þú að líma.

    3. 3

      Gefðu aðeins aðgang að því sem verkið þarf

      Stöðuskýrslan þarf að lesa verkefnalistann, ekki launaskrána.

    • Verkefnalisti
    • Fundargerðir
    • Ákvarðanir
    • Launaskrá✕
    • Samningar✕
    Aðstoðarmaður

    Prófaðu

    # Hlutverk
    Þú ert ráðgjafi í upplýsingaöryggi sem hjálpar verkefnastjórum að tengja gervigreind við gögn án þess að opna of mikið. Þú fylgir reglunni um minnsta aðgang: verklagið fær aðeins það sem það þarf, og helst aðeins lesaðgang.
    
    # Samhengi
    Þetta er skref 4 af 6. Hingað til hef ég límt gögnin inn. Nú vil ég að aðstoðarmaðurinn lesi þau sjálfur.
    
    # Byrjaðu á að spyrja mig
    Spurðu mig, allra í einu, og bíddu eftir svörunum:
    1. Hvaða aðstoðarmann notarðu: Copilot, ChatGPT, Claude eða annan?
    2. Hvar eru gögnin sem verklagið les: SharePoint, Teams, OneDrive, Planner, Jira, Google Drive eða annars staðar?
    3. Hefur fyrirtækið samþykkt þennan aðstoðarmann fyrir vinnugögn, og gilda einhverjar reglur um notkunina?
    4. Eru viðkvæm gögn, svo sem laun, samningar eða persónuupplýsingar, geymd á sama stað og verkefnagögnin?
    Ef ég svara „prufa“, notaðu: Copilot, SharePoint og Planner, já samþykkt, já sum á sama stað.
    
    # Verkefni
    Lestu verklagið mitt hér fyrir neðan og skilaðu:
    1. Þarf aðgang að: hver gagnauppspretta, til hvers verklagið notar hana og hvort lesaðgangur dugi.
    2. Má ekki sjá: það sem gæti legið á sama stað en kemur verklaginu ekki við, og af hverju.
    3. Svona tengir þú: skref fyrir skref í aðstoðarmanninum sem ég nefndi, frá því að líma inn yfir í að vísa beint í skjal, lista eða verkefnamöppu.
    4. Ein breyting á verklaginu sem minnkar það sem það þarf að lesa.
    
    # Reglur
    - Ef svarið við spurningu 3 er nei eða óvíst, byrjaðu á að segja mér að ræða við þann sem fer með upplýsingaöryggi, og haltu svo áfram með tilbúin gögn.
    - Ef þú ert ekki viss um hvernig eitthvað virkar í tilteknu forriti, segðu það frekar en að giska, og segðu hvar ég get flett því upp.
    - Settu svarið upp sem tvo lista efst: Þarf aðgang að, og Má ekki sjá.
    
    <verklag>
    [Límdu verklagið hér]
    </verklag>

    Ráð: Vísaðu beint í skjalið eða listann í stað þess að líma inn. Í Copilot vísarðu í skjal eða lista, og í ChatGPT og Claude setur þú skjölin í verkefni. Gefðu aðeins aðgang að því sem verkið þarf.

    Dæmi

    Þarf aðgang að: verkefnalistanum og fundargerðum stýrihóps. Má ekki sjá: launaskrá, samninga við birgja og persónuupplýsingar.

    Varastu

    Að gefa aðgang að öllu til öryggis. Því meira sem hann les, því meira getur farið úrskeiðis.

  5. Skref 5 / 6

    Mörk

    Það sem gerir þér kleift að treysta kerfinu.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Gerir sjálft

      Það sem er öruggt að endurtaka: lesa, draga saman og skrifa drög.

    2. 2

      Spyr fyrst

      Allt sem fer til annarra eða lofar einhverju: senda póst, birta efni og færa dagsetningar.

    3. 3

      Aldrei

      Það sem verður ekki tekið til baka: greiða reikninga, eyða gögnum og snerta kerfi í rekstri.

    Myndir þú leyfa þetta?

    Smelltu á hvert atriði og veldu.

    • Skrifa drög að stöðuskýrslu

    • Senda stöðuskýrsluna til stýrihóps

    • Færa skilafrest verks um viku

    • Samþykkja reikning frá birgja

    Prófaðu

    # Hlutverk
    Þú ert aðstoðarmaður verkefnastjóra og hjálpar mér að setja skýr mörk á það sem verklagið má gera. Góð mörk gera mér kleift að treysta kerfinu án þess að fara sjálf/ur yfir allt.
    
    # Samhengi
    Þetta er skref 5 af 6. Verklagið er hér fyrir ofan í samtalinu, eða fyrir neðan ef ég líma það inn.
    
    # Byrjaðu á að spyrja mig
    Spurðu mig, allra í einu, og bíddu eftir svörunum:
    1. Hver þarf að samþykkja það sem fer út: þú sjálf/ur, verkefniseigandi eða stýrihópur?
    2. Hvað er óafturkræft í þínu umhverfi: greiðslur, samningar, gögn í rekstri eða annað?
    3. Gilda reglur sem skipta máli, til dæmis um persónuupplýsingar eða innkaup?
    4. Hefur eitthvað farið úrskeiðis áður af því að það var sent of snemma?
    Ef ég svara „prufa“, notaðu: verkefnastjóri og stýrihópur, greiðslur og gögn í rekstri, persónuverndarlög, skýrsla fór einu sinni út með röngum dagsetningum.
    
    # Verkefni
    Bættu þremur köflum við verklagið mitt:
    - Gerir sjálft: byrjaðu á „Les, dregur saman og skrifar drög.“
    - Spyr fyrst: byrjaðu á „Sendir eitthvað til annarra.“
    - Aldrei: byrjaðu á „Breytir gögnum í gagnageymslunni.“
    Bættu við tveimur atriðum í hvern kafla sem passa við stöðuskýrslu og við svörin mín. Bættu svo við reglunni: „Ef þú ert í vafa um hvar eitthvað á heima, farðu með það eins og Spyr fyrst.“
    
    # Prófaðu mörkin
    Búðu til fimm raunhæf atvik sem gætu komið upp næsta föstudag, til dæmis að ábyrgðaraðili biðji um að skilafrestur sé færður. Flokkaðu hvert í Gerir sjálft, Spyr fyrst eða Aldrei og segðu hvaða regla réði. Ef engin regla nær yfir atvik, stingdu upp á nýrri.
    
    # Skilaðu
    Uppfærða verklaginu í heild í einum kóðareit, og síðan atvikunum fimm í töflu: Atvik | Flokkur | Regla.
    
    <verklag>
    [Límdu verklagið hér, eða skrifaðu „hér að ofan“]
    </verklag>

    Ráð: Ef þú ert í vafa, settu það í Spyr fyrst. Þú getur alltaf losað um seinna.

    Dæmi

    Flöskuhálsinn er ekki mannskapur heldur yfirferðin þín. Kerfið getur unnið eins mörg verk og þú vilt, en þú getur aðeins farið yfir nokkur í einu. Mörkin ráða hvað fer framhjá þér og hvað ekki.

    Varastu

    Að setja allt í Spyr fyrst og verða sjálf/ur flöskuhálsinn. Færðu það sem hefur gengið vel yfir í Gerir sjálft.

  6. Skref 6 / 6

    Taktur

    Án takts er þetta enn eitt verkfærið sem þú gleymir.

    Svona byrjar þú

    1. 1

      Endurtekin áminning

      Föstudagar kl. 14 í dagatalinu, með heitinu „Keyra stöðuskýrslu“.

    2. 2

      Verklagið í lýsingunni

      Þegar áminningin kemur er allt á einum stað: þú opnar hana, afritar verklagið og keyrir.

    3. 3

      Seinna: láttu það keyra sjálfkrafa

      Þegar verklagið hefur gengið vel í nokkrar vikur geturðu látið það keyra sjálfkrafa á föstum tíma og setja drögin í pósthólfið þitt.

    MánVikuáætlun
    Þri
    Mið
    Fim
    FösStöðuskýrsla kl. 14
    ✉ Drög bíða þín

    Prófaðu

    # Hlutverk
    Þú ert aðstoðarmaður verkefnastjóra. Verklagið virkar. Nú gerum við það að föstum vana sem keyrir á sama tíma í hverri viku og man eftir síðustu viku.
    
    # Samhengi
    Þetta er síðasta skrefið, 6 af 6. Verklagið er hér fyrir ofan í samtalinu.
    
    # Byrjaðu á að spyrja mig
    Spurðu mig, allra í einu, og bíddu eftir svörunum:
    1. Hvar vistarðu skýrslu hverrar viku: í möppu, á SharePoint-síðu, í tölvupósti eða í einu skjali með nýjustu vikuna efst?
    2. Hvaða tíma viltu taka frá í hverri viku til að keyra verklagið og fara yfir drögin?
    3. Hvað telst „hreyfing“ hjá þér: breytt staða, nýtt næsta skref eða uppfærsla frá ábyrgðaraðila?
    4. Eftir hve margar vikur án hreyfingar á verk að fara efst í skýrsluna?
    Ef ég svara „prufa“, notaðu: eitt Word-skjal með nýjustu vikuna efst, föstudagar kl. 14, breytt staða eða nýtt næsta skref, tvær vikur.
    
    # Verkefni
    1. Breyttu verklaginu þannig að það lesi líka skýrslu síðustu viku og beri saman. Efst í skýrslunni koma þrír listar: Hreyfðist, Hreyfðist ekki og Nýtt. Verk sem hefur ekki hreyfst í jafn margar vikur og ég nefndi fer efst, með fjölda vikna.
    2. Bættu við reglu: ef skýrsla síðustu viku finnst ekki, segðu það og ekki giska á hvað var í henni.
    3. Skrifaðu dagatalsfærslu sem ég get afritað: heiti, endurtekning, tímalengd og lýsing sem inniheldur verklagið í heild.
    4. Stingdu upp á næsta verklagi sem passar í sama takt, til dæmis vikuáætlun á mánudögum, í þremur línum.
    
    # Skilaðu
    Uppfærða verklaginu í einum kóðareit, dagatalsfærslunni í öðrum, og tillögunni að næsta verklagi síðast.

    Ráð: Settu endurtekna áminningu í dagatalið: föstudagar kl. 14, „Keyra stöðuskýrslu“, með verklagið í lýsingunni. Seinna geturðu látið það keyra sjálfkrafa.

    Dæmi

    Svona óx þetta hjá mér, eitt verklag í einu: fyrst stöðuskýrslan, svo vikuáætlunin á mánudögum, vikuyfirferðin á föstudögum og loks mánaðaryfirferðin fyrsta mánudag í mánuði. Kerfið undirbýr hvern fund. Ég mæti og ákveð.

    Varastu

    Að keyra það þegar þú manst eftir því. Án fasts tíma hættir þú að nota það á þriðju viku.

Ein áskorun

Nú er komið að þér

Á föstudaginn: keyrðu fyrstu skýrsluna.

Kerfið tekur við söfnuninni, skráningunni og fyrstu drögunum. Þú færð tímann fyrir fólkið, og það er þar sem leiðtoginn skiptir máli.

  1. 1Settu listann í töflu→
  2. 2Spurðu um áhætturnar→
  3. 3Vistaðu verklagið→
  4. 4Veldu gögnin→
  5. 5Settu mörkin→
  6. 6Settu taktinn→

Svo vex það í lögum

  1. Eitt verklag
  2. + vikuáætlun
  3. + áhættulisti
  4. + ákvarðanaskrá
Verkefnastjórinn hættir ekki að halda boltum á lofti. Hann fær liðsauka sem heldur fleiri boltum og stýrir með höndina á öxlinni.

Eftir föstudaginn

  1. 1

    Spjallmenni og eitt verklag

    Þú gerir

    Skrifaðu eitt verklag, til dæmis stöðuskýrsluna. Límdu það og verkefnalistann inn í spjallmennið á föstudögum.

    Þú færð

    Fyrstu drög að skýrslunni á örfáum mínútum, alltaf eins uppsett.

  2. 2

    Aðstoðarmaður tengdur gögnunum

    Þú gerir

    Settu verklagið í Copilot-erindreka (agent) eða Claude-verkefni og gefðu því aðgang að gagnageymslunni.

    Þú færð

    Þú hættir að líma inn. Aðstoðarmaðurinn les stöðuna sjálfur.

  3. 3

    Takturinn keyrir sjálfur

    Þú gerir

    Láttu verklagið keyra á tíma og bættu við næsta verklagi, til dæmis vikuáætlun, áhættulista eða ákvarðanaskrá.

    Þú færð

    Drögin bíða þín. Þú ferð yfir og samþykkir. Kerfið vex um eitt verklag í einu.

Ég stjórna gervigreind. Þú stjórnar líka fólki.

Bættu við ferlunum sem þú notar fyrir teymið. Þá er það þitt kerfi.

Algengar spurningar

Þarf ég að kunna að forrita?+

Nei. Verklag er textaskjal á mannamáli. Ef þú getur skrifað verkferil fyrir nýjan starfsmann getur þú skrifað verklag fyrir aðstoðarmann.

Hvar eru gögnin?+

Áfram í gagnageymslunni þinni: Planner, SharePoint, Notion, Jira eða Excel. Verkefnastjórnin geymir engin gögn sjálf, hún les og skrifar í þau sem þú átt.

Hvað með trúnað og persónuupplýsingar?+

Notaðu aðstoðarmann sem fyrirtækið þitt hefur þegar samþykkt, gefðu honum aðeins aðgang að því sem verklagið þarf og settu mörkin skýrt: drög, ekki sending.

Hvað ef gervigreindin gerir mistök?+

Já, það gerist. Þess vegna skrifar hún drög og þú samþykkir. Hver mistök verða að nýrri reglu í verklaginu, svo þau endurtaki sig ekki.

Virkar þetta líka með fólki?+

Já. Auðlind getur verið manneskja eða gervigreind. Sama verklag, sama stöðuskráning og sömu mörk gilda fyrir báðar.

Hvar byrja ég?+

Á stigi eitt: veldu eitt verk sem þú endurtekur í hverri viku, skrifaðu það niður og prófaðu það á föstudaginn.

Spunagreind.isLærðu þetta skref fyrir skref

Verkefnastjóri

Hlutverk fyrir lengra komnaFylgir áskrift
námskeið
8
námskeið
verkefni
64
verkefni
á íslensku
100 %
á íslensku

Þú lærir að nota gervigreind sem vinnufélaga í verkefninu: verkefnasvæði sem heldur utan um áætlun, áhættur og ákvarðanir, og fundargerðir sem verða að aðgerðalistum. Þú æfir þig í þínu eigin verkfæri, hvort sem það er ChatGPT, Claude, Gemini eða Copilot.

Byrja sem verkefnastjóri→

Verkefnastjóri er hluti af áskrift að Spunagreind.is. Grunnnámskeiðin geturðu prófað ókeypis áður en þú velur áskrift. Sjá verðskrá →

Námskeiðin

  1. 1Leiðarvísir: gervigreind fyrir verkefnastjóra
  2. 2Grunnatriði gervigreindar
  3. 3Fyrirmæli til gervigreindar: grunnur
  4. 4Gervigreind og starf verkefnastjórans
  5. 5Verkefni með gervigreind
  6. 6Gervigreindarverkfærið þitt: grunnur
  7. 7Gervigreindarverkfærið þitt: lengra komið
  8. 8Þín röð: verkefni frá A til Ö með gervigreind

Viltu sjá hvernig þetta virkar?

Ég sýni þér hvernig það lítur út í raun og hvar þú gætir byrjað.

Hafa samband

Lárus Hjartarson · larus@peritus.is